MARK - Miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna
MARK er vettvangur rannsókna og fræðslu á sviði mannréttinda og mismununar, jafnréttis-, kynja- og margbreytileikafræða í víðum skilningi.
MARK - Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna var stofnuð þann 21. janúar 2011. Frá upphafi hefur MARK haldið úti reglubundnum fyrirlestrum og tekið þátt í ýmsum samstarfsverefnum. MARK er starfrækt á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands
MARK er vettvangur rannsókna og fræðslu á sviði mannréttinda og mismununar, jafnréttis-, kynja- og margbreytileikafræða í víðum skilningi. Í reglum MARK segir m.a. að hlutverk og markmið miðstöðvarinnar sé að:
- Sinna og stuðla að rannsóknum á sviði mannréttinda og mismununar, jafnréttis-, kynja- og margbreytileikafræða í víðum skilningi
- Stuðla að samstarfi við innlent og erlent fræðafólk og rannsóknastofnanir á fræðasviðinu
- Veita nemum aðstöðu og þjálfun til rannsóknastarfa á fræðasviðinu með verkefnum á vegum miðstöðvarinnar
- Efla tengsl rannsókna og kennslu á fræðasviðinu
- Sinna ráðgjöf og rannsóknatengdum þjónustuverkefnum á fræðasviðinu,
- Efla yfirsýn yfir fræðasviðið, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna með útgáfu, fyrirlestrum, fræðslufundum, málþingum og ráðstefnum
- Stuðla að marktækri og markvissri stefnumótun, umræðu og framþróun á sviðinu í samstarfi við opinbera aðila, atvinnulíf og þjóðlíf
Formaður
- Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði, je@hi.is
Stjórn
- Ólafur Rastrick, lektor í þjóðfræði, varaformaður
- Guðbjörg Linda Rafnsdóttir prófessor í félagsfræði
- Brynhildur G. Flóvenz, dósent í lögfræði
- Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði
Forstöðumaður
- Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur.
Ráðgjafarráð MARK er skipað fimm einstaklingum, áhugafólki og hagsmunaaðilum á starfssviði miðstöðvarinnar. Hlutverk ráðsins er að vera stjórn MARK til ráðgjafar og stuðnings við starfsemi hennar. Við val í ráðgjafarráðið er miðað við að fulltrúar endurspegli raddir fræðimanna, sérfræðinga og hagsmunaaðila á fræðasviðinu. Fulltrúar í ráðgjafarráði eru kosnir á aðalfundi.
Í ráðinu sitja núna
- Halldóra Gunnarsdóttir sérfræðingur á Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur
- Hugrún Hjaltadóttir sérfræðingur á Jafnréttisstofu
- Atli Viðar Thorstensen verkefnastjóri Rauða krossi Íslands
- Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands
- Tatjana Latinovic, varaformaður Innflytjendaráðs
Háskóli Íslands
Lögbergi við Suðurgötu - stofa 311
101 Reykjavík
Sími: +354 525 4285
Netfang: mark@hi.is